Undanfarna daga stóð yfir 12 Days of Christmas listaáskorun sem vakti mikla lukku meðal félagsmanna. Áskorunin fól í sér dagleg viðfangsefni yfir tólf daga þar sem listamenn voru hvött til að skapa, æfa sig og prófa nýjar nálganir hvort sem það var í vatnslitum, teikningu eða öðrum efnivið.
Yfir 60 listamenn tóku þátt í áskoruninni, þó þátttaka hafi verið mismunandi eftir dögum. Afraksturinn var einstaklega fjölbreyttur og skemmtilegur, enda hver dagur með sitt eigið þema og nálgun. Með fréttinni hér að neðan fylgir með eitt verk frá hverjum degi, sem sýnir vel þann fjölbreytileika og skapandi kraft sem kom fram.
Það sem gerði þessa áskorun enn sérstæðari var að félagsmenn Vatnslitafélags Íslands tóku þátt með okkur, sem jók enn á fjölbreytni, samveru og sköpunargleði. Samstarfið skapaði skemmtilega blöndu af stílum, aðferðum og hugmyndum og styrkti tengsl listamanna þvert á félög.
Fyrir marga listamenn er slíkt verkefni kærkomin tilbreyting, tækifæri til að æfa sig án pressu, sleppa tökunum, prófa eitthvað nýtt og leyfa sköpuninni að flæða. Áskoranir af þessu tagi minna okkur á mikilvægi þess að halda listinni lifandi, hreyfanlegri og leikandi.
Í öllu jólastressinu getur verið sérstaklega dýrmætt að taka sér stund til að skapa. Að setjast niður, draga andann og mála, teikna eða skissa jafnvel bara í nokkrar mínútur getur verið bæði upplífgandi og nærandi. Fyrir marga varð áskorunin einmitt slík hvíldarpása í annasömu aðventunni.
Við þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir hugrekkið, sköpunina, samveruna og jákvæðu stemninguna. Slíkar áskoranir sýna vel hversu öflugt og skapandi listalífið er þegar fólk kemur saman með sameiginlegt markmið.
Við hlökkum til að endurtaka leikinn vonandi síðar.

Dagur 1 - Jólafugl
Dagur 2 - Jólamatur
Dagur 3 - Snjókarl
Dagur 4 - Jólatré
Dagur 5 - Jólakötturinn
Dagur 6 - Jólasveinn
Dagur 7 - Jólahús
Dagur 8 - Jólakerti
Dagur 9 - Jólasöngur
Dagur 10 - Jólakúla
Dagur 11 - Jólabíó
Dagur 12 - Jólin mín