Berglind Ragna Erlingsdóttir
Berglind Ragna Erlingsdóttir (f. 1967) er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Sköpun og list hafa fylgt henni frá unga aldri – hvort sem það birtist í teikningum, málverki eða einfaldlega í því að safna blómum í vendi. Tengingin við náttúruna, form og liti hefur alltaf verið sterk og mótað hennar listræna sýn.
Berglind hefur víðtækan og fjölbreyttan menntunargrunn. Hún stundaði nám í blómaskreytingum við Garðyrkjuskólann að Reykjum, þar sem áhersla var lögð á formfræði, litafræði og listasögu. Hún nam einnig botaníska hönnun og listsköpun úr náttúrulegum efnivið við Vea fagskóla í Noregi, lauk kennaranámi í handverki og hönnun við Háskólann í Osló og stundaði nám í nýsköpun við Háskólann í Bodø. Að auki hefur hún sótt fjölmörg námskeið við Myndlistarskóla Kópavogs.
Nú er Berglind í meistaranámi við Milan Art Institute í Flórída og stefnir á útskrift haustið 2026.
Hún vinnur aðallega með olíuliti, en notar einnig blandaðar aðferðir í verkum sínum. Undanfarin ár hafa mörg verk hennar orðið til í tengslum við námið, en innblásturinn sækir hún fyrst og fremst í krafta náttúrunnar, listasöguna og tilfinningar mannsins.
Framundan eru spennandi tímar: útskrift, opnun heimasíðu og fleiri sýningar. Ferðalag hennar í listnáminu má fylgjast með á Facebook: Ragna art