Aurora vatnslitahátíð Íslands var haldin á Akureyri og nágrenni í september og vakti hátíðin mikla lukku meðal vatnslitaunnenda. Þar kom saman fjölbreyttur hópur listafólks til að skapa, læra, deila reynslu og síðast en ekki síst njóta þess að mála saman í stórbrotinni náttúru Norðurlands.
Félagar í Myndlistarfélagi Árnessýslu létu sig að sjálfsögðu ekki vanta! Margir félagsmenn gerðu sér lítið fyrir og héldu norður til að taka þátt í gleðinni, námskeiðum, málun og þeirri einstöku stemningu sem myndaðist á hátíðinni.
Dagskráin var fjölbreytt og gaf þátttakendum tækifæri til að sækja innblástur, kynnast öðrum listamönnum og prófa sig áfram með vatnslitina í nýju umhverfi. Náttúran fyrir norðan lék stórt hlutverk og var meðal annars málað undir berum himni þar sem landslagið varð bæði viðfangsefni og innblástur.
Það er einstaklega gaman að sjá hversu öflugt vatnslitasamfélagið á Íslandi er orðið og enn skemmtilegra að sjá hversu fjölmennur hópur frá MFÁ tók þátt.
Við komum heim með fullt af hugmyndum, innblæstri og góðum minningum í farteskinu – og hlökkum strax til næstu hátíðar!
Takk fyrir frábæra Aurora vatnslitahátíð og ógleymanlega daga fyrir norðan!













