Í dag verður opnuð ný og litrík samsýning félagsmanna Myndlistarfélagsins i tilefni 45 ára afmæli félagsins, þar sem fuglar eru í aðalhlutverki. Sýningin var sett upp í gær og fer formleg opnun fram í dag milli kl. 16:00–18:00 á Bókasafninu í Þorlákshöfn, þar sem gestum verður boðið upp á kaffi og léttar veitingar.
Á sýningunni má sjá fjölbreytt verk eftir félagsmenn þar sem fuglar eru túlkaðir á ólíkan hátt allt frá raunsæjum myndum til frjálsari og abstrakt nálgana. Fuglar hafa í gegnum tíðina verið sterkt tákn í myndlist, oft tengdir frelsi, hreyfingu og tengingu við náttúruna, og bjóða upp á endalausa möguleika í litum, formum og stemningu.
Hugmyndin að sýningunni kviknaði þegar Ingvar Thor listamaður heimsótti félagið og hélt sýnikennslu þar sem hann málaði krumma, sem er eitt af hans þekktustu viðfangsefnum. Sú stund vakti mikinn innblástur meðal félagsmanna og varð kveikjan að þessari skemmtilegu samsýningu þar sem fuglar fá að fljúga frjálsir í ólíkum stílum og miðlum.
Sýningin stendur út marsmánuð og er opin á auglýstum opnunartímum Bókasafnsins í Þorlákshöfn.
Allir eru hjartanlega velkomnir að líta við, njóta listaverkanna og fagna með listafólkinu á opnuninni í dag. Þetta er fallegt tækifæri til að upplifa fjölbreytta myndlist og sjá hvernig fuglar náttúrunnar lifna við á striga og pappír í höndum listafólks úr heimabyggð.



