Glæsilegt opnunarteiti á endurbættri vinnustofu félagsins

Glæsilegt opnunarteiti á endurbættri vinnustofu félagsins

 



Það var sannkölluð hátíðarstund þegar Myndlistarfélag Árnessýslu bauð félagsmönnum til opnunarteitis á nýendurbættri vinnustofu félagsins. Mætingin var frábær, stemningin létt og gleðin ríkjandi og ljóst að breytingarnar hafa vakið mikla ánægju meðal félagsmanna.

Vinnustofan er hjarta félagsins, og nú þegar hafa hátt í 60 félagsmenn nýtt sér aðstöðuna frá því að hún var opnuð það er nær helmingur alls félagsins, sem telur um 120 félagsmenn. Þetta sýnir svart á hvítu að þörfin fyrir góða vinnuaðstöðu var mikil og að þetta skref var hið rétta. Þetta er samt bara byrjunin. 

 

Ný tækifæri og blómlegt félagsstarf

Stjórn félagsins er afar stolt af framkvæmdunum sem gerðar hafa verið, en stærstu þakkirnar fara til þeirra sem lögðu hönd á plóginn. Þið vitið hver þið eruð!

Starfið í vetur verður einstaklega fjölbreytt. Á þriðjudögum verða opnar vinnustofur þar sem félagsmenn geta hist og skapað saman, og á miðvikudögum verða vatnslitahittingar. Auk þess er félagið alltaf opið fyrir hugmyndum og til í að prófa eitthvað nýtt. 

 

Opið fyrir almenning

Í október hefst nýtt fyrirkomulag: vinnustofan og Gallerí Gangur verða opin fyrir gesti og gangandi á ákveðnum opnunartímum. Þá gefst almenningi tækifæri til að koma inn, skoða sýningar, kynnast félagsstarfinu og ekki síst kaupa list eftir frábæra félagsmenn MFÁ. Þar má finna mikið af fjölbreyttum og fallegum verkum sem henta jafnt í heimilið sem í gjafir.

 

Framundan stórir viðburðir

Menningarmánuðurinn í október verður stútfullur af fjölbreyttum viðburðum. Jólamarkaðurinn í desember er fastur liður sem enginn vill missa af. 45 ára afmæli félagsins verður haldið hátíðlega á næsta ári með sýningum, viðburðum og fleiri uppákomum.

 

Félagsskapur og samstaða

Myndlistarfélag Árnessýslu er meira en bara félag, það er samfélag. Þar ríkir samvinna, gleði og skapandi kraftur sem gerir starfið lifandi og litríkara með hverju ári. 

 

Viltu vera með?

Ef þú hefur áhuga á myndlist og langar að taka þátt í þessu öfluga starfi, þá er félagið alltaf opið fyrir nýjum félögum. Það eina sem þarf að gera er að senda póst á: myndlistin@gmail.com.

Back to blog