Myndlistafélag Árnessýslu óskar öllum fylgjendum, félagsmönnum, samstarfsaðilum og velunnurum gleðilegs nýs árs og farsældar á árinu 2026.
Nýtt ár ber með sér ný tækifæri, hugmyndir og spennandi verkefni. Það er margt framundan hjá félaginu og við hlökkum til að halda áfram að efla myndlistina, skapa vettvang fyrir listafólk og deila sköpun, gleði og innblæstri með ykkur á komandi ári.
Takk fyrir stuðninginn og samveruna, við erum spennt fyrir árinu 2026 og öllu því sem það ber í skauti sér.
Gleðilegt nýtt ár!