Jólastemningin verður allsráðandi í Sandvíkursetri þegar Jólamarkaður Myndlistarfélagsins opnar fimmtudaginn 20. nóvember kl. 18:00–21:00, einmitt sama kvöld og kveikt verður á jólaljósunum í bænum. Þá er tilvalið að rölta við, njóta andrúmsloftsins og styðja við listamennina í nærumhverfinu.
Markaðurinn verður einnig opinn helgina, laugardaginn 22. nóvember og sunnudaginn 23. nóvember kl. 13:00–17:00.
Á markaðinum finnur þú fjölbreytt handgerð listaverk og einstaka muni eftir félagsmenn, verk sem eru einstök og hvergi annars staðar fáanleg. Í heimi þar sem allir eiga allt, er listin gjöf sem gefur áfram, hún gleður, vekur tilfinningar og færir heimilinu sál og hlýju.
Ekki láta þennan hátíðlega markað fram hjá þér fara, komdu og upplifðu töfra listar og jóla undir einu þaki. Hjá okkur finnur þú jólagjöfina sem talar beint til hjartans.