List, sköpun og samvera í menningarmánuðinum október

List, sköpun og samvera í menningarmánuðinum október

Myndlistarfélag Árnessýslu býður upp á fjölbreytta dagskrá í Sandvíkursetri í október. Félagsstarfið er opið öllum í tilefni menningarmánaðarins og gestir eru velkomnir að skoða sýninguna, kynnast starfseminni og taka þátt í skapandi samveru.

Menningarmánuðurinn er þegar kominn vel af stað. Samsýning félagsmanna opnaði laugardaginn 3. október og vel heppnað örnámskeið í abstraktmálun fór fram 6. október undir leiðsögn Berglindar Björgvinsdóttur. Framundan eru opnar vinnustofur, vatnslitahittingar, blönduð tækni, listaganga og kvöldstundin „Málum og skálum“.

Samsýning félagsmanna um helgar

Samsýning félagsmanna stendur yfir í október og gefur gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttri listsköpun innan félagsins. Sýningin er opin laugardaga og sunnudaga kl. 13–16 til og með 25. október.

Laugardaginn 17. október verður jafnframt listaganga á dagskrá. Félagsmenn sem eiga verk á sýningunni sjá um viðveru og taka á móti gestum.

Skapandi starf fyrir alla

Í október opnar félagið starf sitt fyrir almenningi. Bæði þau sem hafa reynslu af myndlist og þau sem eru forvitin um að prófa eru hvött til að koma, kynnast félaginu og njóta samverunnar.

Dagskráin framundan er eftirfarandi:

  • 7. október kl. 11–13: Opið hús.
  • 8. október kl. 11–13: Vatnslitahittingur.
  • 10.–11. október kl. 13–16: Samsýning opin.
  • 12. október kl. 13–15: Blönduð tækni.
  • 13. október kl. 17–19: Opin vinnustofa.
  • 14. október kl. 11–13: Opin vinnustofa – komdu að mála með okkur.
  • 15. október kl. 19–22: Málum og skálum.
  • 17. október kl. 13–16: Samsýning og listaganga.
  • 18. október kl. 13–16: Samsýning opin.
  • 19. október kl. 13–15: Blönduð tækni.
  • 20. október kl. 17–19: Opin vinnustofa.
  • 21. október kl. 11–13: Opið hús.
  • 22. október kl. 11–13: Vatnslitir.
  • 24.–25. október kl. 13–16: Samsýning opin – síðasta sýningarhelgin.
  • 26. október kl. 13–15: Blönduð tækni.
  • 27. október kl. 17–19: Opin vinnustofa.
  • 28. október kl. 11–13: Opið hús.
  • 29. október kl. 11–13: Vatnslitir.

Nánari upplýsingar um einstaka viðburði verða auglýstar þegar nær dregur.

Myndlistarfélag Árnessýslu hvetur íbúa og gesti til að nýta menningarmánuðinn til að upplifa myndlist og kynnast skapandi starfi í heimabyggð. Verið öll hjartanlega velkomin í Sandvíkursetur!

Back to blog