Minning - Arite Fricke

Minning - Arite Fricke


Það er með djúpri sorg sem Myndlistafélag Árnessýslu kveður kæran félagsmann sinn, Arite Fricke, sem lést fyrir jól langt fyrir aldur fram. Í gær var Arite lögð til hinstu hvílu við fallega og virðulega athöfn.

Arite var mikil listakona og afar virk í starfi félagsins. Hún tók þátt í fjölda sýninga og lagði með nærveru sinni, sköpunarkrafti og einstöku sjónarhorni og lagði sitt af mörkum til listarinnar og samfélagsins okkar. Verk hennar báru með sér sterka tengingu við náttúruna, litadýrð og næmi sem snerti marga.

Við erum innilega þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með Arite og fyrir þau spor sem hún skilur eftir sig í starfi félagsins og í hugum þeirra sem fengu að kynnast henni og list hennar.

Myndlistafélag Árnessýslu sendir fjölskyldu Arite og ástvinum hennar innilegar samúðarkveðjur. Minning hennar lifir áfram í verkunum hennar og við munum halda litríkri náttúrunni á lofti sem áframhaldandi innblæstri í hennar anda.

Arite Fricke, minning þín lifir.

Back to blog