Myndlistarfélag Árnessýslu fagnar 45 ára afmæli með 45 viðburðum í mars!

Myndlistarfélag Árnessýslu fagnar 45 ára afmæli með 45 viðburðum í mars!

Myndlistarfélag Árnessýslu fagnar 45 ára afmæli í mars og framundan er sannkallaður menningarmánuður á Suðurlandi. Alls verða 45 viðburðir haldnir í tilefni afmælisins og það besta er að opið er fyrir almenning á flest öllum viðburðum mánaðarins.

Nýlega fór fram vel heppnaður aðalfundur félagsins þar sem góð mæting og jákvæð stemning einkenndu kvöldið. Ljóst er að félagið stendur sterkt, með öflugt bakland og mikinn metnað fyrir komandi ári. Ný stjórn hefur tekið til starfa og hlakkar til að leiða afmælisárið með krafti, gleði og samvinnu.

Dagskrá vikunnar – opið fyrir alla!
Hér má sjá hvenær er opið og hvenær almenningur getur komið og verið með:

Mánudagur 2. mars
Ungmennakvöld kl. 19–21
Fyrir skapandi fólk á aldrinum 18–30 ára. Allir mæta með sitt verkefni, trönur á staðnum til að mála, teikna og  skapa. Notaleg og afslöppuð stemning.

Þriðjudagur 3. mars
Opin vinnustofa kl. 19–21
Opið fyrir alla 
Komdu með þitt eigið verkefni og njóttu þess að vinna í skapandi umhverfi.

Miðvikudagur 4. mars
Vatnslitahittingur kl. 17–19
Allir velkomnir með sína vatnsliti, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/n.

Fimmtudagur 5. mars
Heimsókn á vinnustofu Guðrúnar Arndísar Tryggvadóttur í Hveragerði.
(Sá viðburður er eingöngu fyrir félagsmenn.)

Vatnslitahittingur kl. 11–13 á vinnustofu félagsins
Opið fyrir almenning, málað saman í afslöppuðu umhverfi.

Föstudagur 6. mars
Afmæliskaffi kl. 11-13
Opið hús, heitt á könnunni og notaleg samvera í tilefni 45 ára afmælisins.

45 ár – 45 viðburðir – allir velkomnir
Allan marsmánuð verður líf og fjör í og í kringum vinnustofu félagsins. Markmiðið er að opna dyrnar, bjóða nýtt fólk velkomið og sýna hversu lifandi og aðgengileg myndlistin er.

Hvort sem þú hefur aldrei haldið á pensli eða hefur málað árum saman, þá ertu velkomin/n.

Fylgstu með frekari dagskrá og sýningum á heimasíðu félagsins á næstu dögum.

Komdu og vertu með, við hlökkum til að sjá þig!

Back to blog