Starfið hjá okkur er nú hafið af fullum krafti og við hlökkum gríðarlega til ársins sem er framundan. Þetta ár verður án efa stútfullt af skemmtilegum viðburðum, námskeiðum, opnum vinnustofum, listasýningum, örnámskeiðum og notalegri samveru þar sem listin fær að njóta sín í allri sinni fjölbreytni.
Það er margt spennandi á dagskránni á næstunni. Við erum um þessar mundir að setja upp sýningu á Mika, Reykholti í Bláskógarbyggð og verður hún auglýst nánar mjög fljótlega. Þar munu gestir geta notið listar í fallegu umhverfi og upplifað verk sem segja sína eigin sögu.
Árið 2026 verður líka sérstakt ár fyrir félagið, þar sem við fögnum 45 ára afmæli. Af því tilefni stefnum við á fjölbreytta dagskrá, sýningar, viðburði og uppákomur sem endurspegla sögu félagsins, nútímann og framtíðina. Við munum bjóða til landsins bæði erlenda listamenn til að halda námskeið hjá okkur, sem og hæfileikaríka kennara héðan að heiman.
Við ætlum að sjálfsögðu að halda áfram með opin hús, þar sem gestir og gangandi geta komið við, fengið sér kaffisopa, spjallað og baðað sig í rólegri nærveru listarinnar. Okkur finnst mikilvægt að skapa rými þar sem fólk getur komið eins og það er án kröfu, án pressu og bara til að njóta.
Á næstunni munum við einnig boða til aðalfundar, þar sem við gerum upp síðasta ár og kynnum allt það spennandi sem er framundan. Þar gefst tækifæri til að taka þátt, koma með hugmyndir og vera virkur hluti af þessu skapandi samfélagi.
Við munum halda aftur vinsæla Málum og skálum viðburði, þar sem list og léttleiki fara saman og bætast þeir enn fleiri við á árinu. Einnig erum við að skipuleggja fjölskyldu- og barnaviðburði, meðal annars í tengslum við Vor í Árborg, þar sem yngstu listamennirnir fá að blómstra.
Við erum spennt fyrir samstarfsverkefninu List í lauginni, sem við vinnum í samstarfi við bókasafnið í Árborg, þar sem listin mætir fólki á óvæntum og skemmtilegum stöðum.
Og já, við ætlum líka að gera fleiri TikTok myndbönd. Ekki endilega til að vera fullkomin, heldur til að skemmta okkur, hlæja aðeins að sjálfum okkur og minna okkur á að lífið á ekki að vera tekið of alvarlega. Númer eitt, tvö og þrjú hjá okkur er einfaldlega: að hafa gaman.
Ef þú hefur áhuga á að kíkja til okkar, taka þátt, læra eitthvað nýtt eða bara vera með, þá ekki hika við að hafa samband.
myndlistin@gmail.com
Við hlökkum til að sjá ykkur!