Opnun sýningar Selmu Rutar Ólafsdóttur, Bókasafninu á Eyrarbakka

Opnun sýningar Selmu Rutar Ólafsdóttur, Bókasafninu á Eyrarbakka

Selma Rut hefur alla tíð haft mikla sköpunarþörf og gaman af því að prófa sig áfram með fjölbreyttan efnivið. Hún hefur á lífsleiðinni unnið með ólíkar aðferðir og efni og hefur meðal annars reynslu sem húsamálari, þar sem hún kynntist efniviði á borð við spartl, frauð og kítti, efni sem hún hefur síðar nýtt á skapandi hátt í eigin verkum.

Fyrir fjórum árum flutti Selma á Eyrarbakka og þar varð heimilið hennar að helstu tilraunastofu sköpunarinnar. Stórir veggir sem stóðu auðir urðu upphafspunktur að nýjum hugmyndum og verkefnum. Þar hefur hún meðal annars stenslað veggi, smíðað hálfveggi með innbyggðri lýsingu, málað litríka veggi og umbreytt hlutum sem fyrir voru. Sköpunin sprettur oft úr því að nýta það sem til er, frekar en að sækja efni í verslun.

Selma segir að hún hafi aldrei litið á sig sem hefðbundinn listamann heldur einfaldlega sem manneskju sem hafi gaman af því að skapa eitthvað nýtt. Hún sækir innblástur í áferð, efni og forvitni áhorfandans. „Mér finnst sérstaklega skemmtilegt þegar fólk veltir fyrir sér úr hverju verkin eru gerð og jafnvel vill snerta þau. Það er eiginlega mesta hrósið,“ segir hún.

Á síðustu misserum hefur Selma verið virk í Myndlistarfélagi Árnessýslu, þar sem hún hefur þróað áfram listsköpun sína og tekið virkan þátt í starfi félagsins. Hún situr nú í stjórn félagsins og segir starfið bæði skemmtilegt og gefandi. Að sýna verk sín opinberlega sé ákveðin áskorun, en jafnframt tækifæri til að kveikja sköpunarneista og forvitni hjá öðrum.

Sýning Selmu Rutar er bæði falleg og áhugaverð og hefur þegar vakið mikla athygli gesta. Enginn listunnandi ætti að láta hana fram hjá sér fara.

Sýningin er opin alla miðvikudaga í mars á auglýstum opnunartíma bókasafnsins, kl. 10–18.

Allir eru hjartanlega velkomnir.


Back to blog