Það er mikið gleðiefni og heiður að segja frá því að verk eftir félagsmann okkar, listakonuna Sigurlín Grímsdóttur hefur verið valið til þátttöku á alþjóðlegri vatnslitamyndasýningu sem haldin verður í borginni Fremantle í Vestur-Ástralíu í júní næstkomandi. Sýningin er á vegum Watercolour Society of Western Australia og er einn af mikilvægari vettvangi fyrir vatnslitalist á alþjóðavísu.
Verk Sigurlínar er eitt af fimm verkum sem Vatnslitafélag Íslands mun senda til sýningarinnar, en alls sendu tuttugu listamenn inn verk í forval hér á landi. Dómnefndin, sem skipuð var reyndum og virtum vatnslitalistamönnum, Ingibjörgu Hauksdóttur, Stephen Lárus og Tómasi Leó Halldórssyni. Dómnefndin fékk verkin til umsagnar nafnlaus, til að tryggja faglegt og hlutlaust mat. Verk voru valin út frá þemanu „Íslenskur spegill“, sem vísar til þess hvernig listamenn túlka íslenskan veruleika, náttúru, stemningu og menningu í gegnum miðil vatnslitanna.
Auk Sigurlínar voru verk eftir Aðalbjörgu Þórðardóttur, Derek Mundell, Guðrúnu Steinþórsdóttur og Jónu Bergdal Jakobsdóttur valin til þátttöku. Að vera valin í hóp þessara fimm listamanna er mikil viðurkenning á listrænum styrk Sigurlínar og framlagi hennar til vatnslitalistar.
Alþjóðlega sýningin í Fremantle sameinar vatnslitalistamenn víðs vegar að úr heiminum og veitir einstakt tækifæri til að kynna íslenska vatnslitalist á alþjóðlegum vettvangi. Þátttakan undirstrikar þann mikla kraft, fagmennsku og fjölbreytileika sem einkennir íslenska vatnslitamálun í dag.
Við óskum Sigurlín innilega til hamingju með þennan frábæra árangur og hlökkum til að fylgjast með verki hennar og íslenskri vatnslitalist fá þann alþjóðlega sýnileika sem hún á svo sannarlega skilið.

