Sunnudaginn 1. febrúar stóðu listamenn úr Myndlistarfélagi Árnessýslu saman að afar vel heppnaðri styrktarsýningu til stuðnings Hinriki Sjørup og fjölskyldu hans. Dagurinn fór fram úr björtustu vonum, hátt í 400 gestir lögðu leið sína á vinnustofu félagsins, yfir 100 listaverk seldust og alls söfnuðust yfir 2 milljónir króna sem renna óskertar til fjölskyldunnar.
Félagsmenn sem störfuðu á staðnum tóku á móti gestum, aðstoðuðu við kaup og greiðslur og héldu utan um söluna af mikilli fagmennsku. Á sama tíma streymdu pantanir inn í gegnum heimasíðu félagsins, www.myndlistin.is. Sjálfboðaliðar hlupu á milli, merktu verk með rauðum doppum um leið og þau seldust og tryggðu að allt flæði gengi snurðulaust fyrir sig. Sérstakar þakkir fá þau sem unnu þennan dag af óeigingirni og hlýju.
Nær öll verkin kláruðust af veggjum sýningarinnar. Þegar fór að gisna á veggjunum brugðust listamenn við, sóttu fleiri verk og fylltu í rýmin og svo seldust þau einnig. Andrúmsloftið var einstakt og samstaðan mögnuð. Formaður félagsins er afar stolt af þeim félagsmönnum sem gáfu verk og lögðu hönd á plóg.
Charlotte amma og afar Hinriks, þeir Eiríkur og Ólafur, mættu ásamt systkinum hans Hinriks, þeim Lenu Sif og Elímar Sjørup. Nærvera þeirra gerði daginn enn merkingarbærari fyrir alla viðstadda og félaginu þótti afar vænt um að fá þau.
Sérstakar þakkir fær Grétar Matt sem lék og söng fyrir gesti nær allan tímann og skapaði dýrmætt andrúmsloft. Grétar gaf jafnframt fimm eintök af vínylplötum, nýjasta platan hans, Unbreakable, í styrktarsjóðinn og rann allur ágóði óskertur til fjölskyldunnar. Titillagið á plötunni hans Grétars átti djúpa samleið með deginum og skilaboðin voru skýr, Hinrik er óbrjótandi (unbreakable) og hann mun sigra þessa baráttu sína. Við bendum öllum að hlusta á plötuna hans á Spotify.
Fjölmargir lögðu sitt af mörkum til að dagurinn tækist svona vel. HP kökugerð gaf dýrindis kanilsnúða, Mjólkursamsalan lagði til kókómjólk og mjólk, EM Heimagallery styrkti sýninguna með listaverki og Katrín Helgadóttir gaf einnig verk í söfnunina, bæði verkin seldust. Bekkjarfélagar Hinriks í 5. bekk Vallaskóla stóðu vaktina með miklum sóma að selja listaverk sín og eiga hrós skilið, sem og kennarar og starfsfólk skólans sem tóku jákvætt í samstarfið með skömmum fyrirvara.
Myndlistarfélag Árnessýslu þakkar af heilum hug öllum sem komu, studdu og tóku þátt. Sérstakt hrós fá þeir félagsmenn sem gáfu verkin sín og stjórn félagsins sem bar hitann og þungann af undirbúningi og framkvæmd. Án þeirra hefði þetta ekki verið mögulegt.
Enn eru nokkur verk til sölu á heimasíðu félagsins út vikuna fyrir þau sem vilja leggja sitt af mörkum, www.myndlistin.is
Þeir sem vilja styrkja beint er bent á að leggja inn á reikning móður Hinriks:
Reikningsnúmer: 0325-26-9092
Kennitala: 160692-2789
Allir eru ávallt velkomnir á vinnustofu félagsins í heimsókn, kaffi og spjall. Þau sem hafa áhuga á myndlist eru hvött til að ganga í félagið og taka þátt í þessu öfluga myndlistarfélagi.
Að lokum sendum við Hinriki og fjölskyldu hlýjar baráttukveðjur. Við stöndum með þér Hinrik.













