Starfið komið á fullt eftir sumarfrí

Starfið komið á fullt eftir sumarfrí


Eftir gott sumarfrí er starfið hjá félaginu komið aftur af stað og framundan er líflegur og skapandi vetur hjá félaginu.

Vinnustofurnar okkar eru aftur farnar að fyllast af litum, hugmyndum og góðum félagsskap. Reglulegt starf er hafið og við hlökkum mikið til næstu vikna, enda nóg spennandi á döfinni.

Október verður sérstaklega viðburðaríkur, en þá tekur við menningarmánuður þar sem boðið verður upp á fjölbreytta viðburði og dagskrá. Fjöldi viðburða verður opinn öllum, ekki eingöngu félagsmönnum, og því kjörið tækifæri til að kynnast félaginu, listsköpuninni og því öfluga samfélagi sem hefur myndast í kringum MFÁ.

Einnig er sýning framundan, auk þess sem reglulegar vinnustofur, samverustundir og ýmis skapandi verkefni verða á dagskrá í vetur.

Myndlistarfélag Árnessýslu er lifandi og ört stækkandi félag þar sem allir eiga að geta fundið sér stað – hvort sem fólk hefur stundað myndlist lengi, er nýbyrjað eða langar einfaldlega að kynnast skapandi samfélagi og prófa eitthvað nýtt.

Það er alltaf hægt að ganga í félagið og nýir félagsmenn eru hjartanlega velkomnir. 

Við hlökkum til vetrarins, sýningarinnar og ekki síst menningarmánaðarins í október. Það verður nóg um að vera – fylgist með dagskránni!

Back to blog