Styrktarsýning listaverka til stuðnings Hinriki Sjørup

Styrktarsýning listaverka til stuðnings Hinriki Sjørup

Listamenn úr Myndlistarfélagi Árnessýslu standa saman að styrktarviðburði til stuðnings Hinriki Sjørup, 10 ára dreng frá Selfossi sem nýlega greindist með krabbamein og er alvarlega veikur. Hinrik heldur ásamt foreldrum sínum til Svíþjóðar þann 18. janúar til áframhaldandi meðferðar, þar á meðal beinmergsskipta.

Með þessum viðburði viljum við sýna samstöðu, stuðning og leggja okkar af mörkum til að létta undir með fjölskyldunni á þessum krefjandi tíma.

Félagsmenn MFÁ hafa gefið listaverk sem verða til sölu og rennur allur ágóði óskertur til fjölskyldunnar. Hvert verk hefur lágmarksverð, en gestum er frjálst að greiða hærri upphæð ef þeir vilja leggja meira af mörkum.

Viðburðurinn fer fram sunnudaginn 1. febrúar frá kl. 12:00–17:00 á vinnustofu MFÁ í Sandvíkursetri (inngangur um hurðina á móti bílastæðinu bakvið Landsbankann).

Einnig verður hægt að kaupa verkin á netinu í gegnum heimasíðu félagsins www.myndlistin.is, undir flipanum Styrktarsýning. Verk verða sett inn daglega og hægt er að kaupa strax.

Þetta er tækifæri til að eignast fallegt listaverk og um leið leggja mikilvægt framlag til fjölskyldu sem stendur frammi fyrir miklum áskorunum.

Við hvetjum öll til að mæta, deila og styðja eftir getu. Samstaða skiptir máli. Margt smátt gerir eitt stórt.

Sjáumst sunnudaginn 1. febrúar.
Ef það eru einhverjar fyrirspurnir, endilega sendið okkur tölvupóst á myndlistin@gmail.com

https://myndlistin.is/collections/styrktarsyning-fyrir-hinrik-sjorup

Back to blog