Fimmtudaginn 22. janúar opnar sýningin Ánægja í Mika í Reykholti, þar sem 29 verk eftir félagsmenn Myndlistarfélags Árnessýslu verða til sýnis. Sýningin stendur til 1. mars og sameinar tvö meginviðfangsefni: annars vegar íslenska hestinn og hins vegar hluti sem segja sögur, hversdagslega gripi sem bera með sér minningar, tilfinningar og persónulega merkingu.
Í verkunum um hestinn má finna túlkanir á styrk, frelsi, fegurð og tengslum manns og dýrs, tengslum sem eiga djúpar rætur í íslenskri menningu. Hin verk sýningarinnar fjalla um hluti sem geyma sögur; muni sem hafa fylgt fólki í gegnum lífið og kalla fram minningar, nostalgíu og augnablik sem móta okkur.
Þessi tvö viðfangsefni fléttast saman í heildstæðri sýningu þar sem áhorfendur fá innsýn í það hvernig list getur vakið tilfinningar, endurminningar og skapað tengingu við bæði fortíð og nútíð.
Til að tryggja faglegt og hlutlaust val á verkum var fengin utanaðkomandi dómnefnd. Í henni sátu Guðrún Steinþórsdóttir, listakona, Elísa Björg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri markaðs- og kynningarmála hjá Listasafni Íslands og Ragnar Hólm, myndlistarmaður. Dómnefndin valdi verkin út frá listrænum gæðum, fjölbreytni og heildarupplifun sýningarinnar.
Mika í Reykholti býður upp á notalegt umhverfi þar sem list og góð upplifun fara saman. Gestir eru hvattir til að gera sér ferð, skoða sýninguna og nýta tækifærið til að setjast niður og njóta góðs matar og drykkjar í leiðinni.
Sýningin Ánægja er opin frá 22. janúar til 1. mars í Mika, Reykholti.


